kgblogg
10.01.2007 13:49:15 / likeable

Þorskausinn

Jæja, þá virðust krónan okkar vera að deyja drottni sínum.
Mér sýnist sem Ísland sé að breytast í kapítalíska útópíu.
Það eltir bókstaflega allt bissnessinn.
Eftir að bankarnir sýndu okkur þá góðvild að bjóða 90% íbúðarlán, viðbótarlán og endurfjármögnun.
Hoppuðum við í peningagjána, horfðum bláeyg á Innlit/útlit og keyptum bíla, flísar, parket og heimilistæki fyrir "gróðann" af endurfjármögnuninni. Með þessu fylleríi áunnust 2 hlutir:

1. Við endurskuldsettum sjálf okkur og hækkuðum fasteignaverð uppúr öllu valdi
2. Við gáfum bönkunum endalausa peninga að leika sér með í útlöndum.

Það er orðið kappsmál almennings að bankarnir og risafyrirtækin "okkar" meiki það í útlöndum,
Milljarðaforstjórarnir eru orðnir poppstjörnur sem slúðurblöð, sjónvarpsþættir og lífsstílsmagasín keppast við að hylla sem hetjur.
Kannski ekki skrýtið, við erum nú einusinni baklandið þeirra, og lögðum alheiminn að fótum þeirra með græðgi nútímaþægindanna. Við fáum nú ýmislegt í staðinn! Það er nú ekki amalegt að fá frítt kaffi í bankanum og árlegt dagatal sent í pósti, sumir fá meira að segja geisladiska, brauðkörfur og grillpinna!

Og þegar við höfum nú þegar gengið svona langt í að velja íslenskt. Af hverju að stoppa?
Við skulum aldeilis ekki plebbast til að láta lítilræði eins og sjálfstæða gjaldmiðilinn okkar standa í vegi fyrir því að milljarðafyrirtækin geti grætt aðeins meiri pening á að gera upp í hnattvænni mynt en þorskhausnum.
Ekki það að þessi stjarnfræðilegi uppgangur þeirra og peningafoss komi okkur til góða.
Lánavextirnir okkar lækka ekkert, verðtrygging er föst, Alltaf jafn dýrt að fljúga, kaupa lyf og mat á íslandi.
Við munum aldrei sjá túkall... eða krónu... eða evru af þessu.

Þegar ég fer að pæla í því... af hverju ekki að ganga enn lengra?
Er ekki ágætis hugmynd að leggja íslenskunni bara?
Taka upp ensku, það kunna hvort eð er allir íslendingar ensku.. nema utanríkisráðherra kannski.
Get ímyndað mér að við myndum spara og græða heilmikla peninga á því.

Fullkomin hagræðing. er það ekki takmarkið?


Börsson

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 05:22:16 / likeable

Þjóðremba og pisserí

Búna vera fylgjast með dönskum rakka niður óskabörn íslensku þjóðarinnar.
Fussum svei! Hvað halda þessir menn að þeir séu?
Rakkandi niður alminlega íslendinga sem vinna fyrir sér í sveita síns andlits?
Ég dái íslensku bissnessútrásina. Finnst fátt meira töff en að skutlast á einkaþotu milli funda vopnaður vatnsflösku, gemsa og forsetfrúnni í handfarangri.
Það er verðmætasköpun sem segir sex.
Fylgdist með uppháls lífskúnstnernum mínum Þorsteini JOÐ taka púlsinn í miðbænum.
Flestir sammála um að þetta væri bara alkunnur rasismi og biturð baunans.

Þessi blaðasnápur hefur líklegast fengið goðapulsu fyrir slysni þegar hann kom hér síðast...
Eða að langafi hans hafi verið mjölkaupmaður sem varð gjaldþrota þegar sveitavargurinn
í norðurhjáleigunni tók uppá að vilja stjórna sér sjálfur.
Það er ekki sjens að sorpritari þessi hafi unnið rannsóknarvinnu sem leiddi í ljós vafasamar dílingar bissnesmanna sem orðnir eru áberandi á ritvelli blaðsins sem hann starfar hjá. Ekki sjéns!
Þetta er bara langrækni, biturð, og dólgsháttur.
Við hinir íslensku billjónerarnir sjáum nú í gegnum sona vitleysu.
Sláum nú skjaldborg um bræður okkar. Meiri pening! Áfram ísland!

...

Er líka búna vera pæla í pisseríi.
Fyrsta árs nemar leiklistardeildar listaháskólans sýndu um daginn verk þar sem einn leikarinn (karl) tók uppá því að pissa yfir annan leikara (konu).
Áhorfendum blöskraði, kannski skiljanlega. Það er ekki á hverjum degi sem almenningur verður þess vafasama heiðurs aðnjótandi að horfa uppá pisserí,
og er ég viss um að margur pissfetistinn nagar sig í handarbökin yfir að fylgjast ekki betur með leikhúslifinu.
Nú þekki ég ekki samhengi þessa atriðis við atburðarás sýningarinnar...
Heyrði að þetta hafi átt að tákna hnignun vísindasamfélagsins, sem ég skil nú ekki alveg...
heyrði líka að nemarnir séu að að ganga nærri sjálfum sér, vinna með hið gróteska, líkamsvessa og þvíumlíkt...
Mér er í sjálfu sér alveg sama, ég stunda ekki leikhús. Og tel mig þarmeð atvæðislausan á því sviði.
Og ekki veit ég hversu mikið menningarstigið okkar hækkaði við þessar tilfæringar.
En hámenning og frjáls tjáning skal það vera.

Það sem pirrar mig mest við þetta hafarí er helvítis kynjagleraugnavitleysan.
Einhver femínisti kallar þetta klámvæðingu listaháskólans og niðrandi fyrir konur.
Hversu vitlaus og siðferðilega umdeilanlegur sem verknaðurinn er, þá eru þessir nemar fullorðið fólk, og sem fullorðið fólk ábyrgt gerða sinna.
Er óhugsandi að þessi kona sé hugsandi manneskja, með sjálfstæðan vilja og taki meðvitaða ákvörðun? Hún er jú leikarinn sem leikur þetta hlutverk.
Væri það henni ofviða hefði hún líklega ekki gert það...
...nei, skítt með sjálfsábyrgð. Hún er kona, fórnarlamb.


PS. Ég er fyllilega sáttur við að bíða í hálftíma röð KB banka í kringlunni eftir klukkan fjögur og borga 190 kr. aukagjald seinaganginn í mér.
Einhver þarf að fjármagna strandhöggið.


Börsson

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 23:07:51 / likeable

Títóismi í knýttum bökum

Vildi bæta því við fyrri póst að ég er enginn bubba fan.
En hann hefur náðargáfuna. Ég ber virðingu fyrir honum. Það fara ekki allir í skóna hans.
Persónulega finnst mér hann bestur bara einn með gítarinn. Þó það verði æ erfiðara að taka hann
alvarlega, þá fer það ekkert framhjá manni þegar hann hefur upp raust sína.

Ég horfi á idolið. Finnst það frábært. Hágæða alíslenskt grín með milljónaveltu.
Var á móti því fyrst, en svo fattaði ég að þetta væri grínþáttur.
Páll Óskar er náttúrulega gimsteinn.
En þó að þetta sé alltsaman þaulskipulagður, kóreógrafaður og glansandi plebbismi sem kemur tónlist akkúrat ekkert við. Þá koma góðir songvarar... erm... nei, ég meinti söngkonur útúr þessu.
Eins og hildur vala. Góð söngkona.

Popptónlist á íslandi er að vaxa. Mér finnst flest leiðinlegt, en það þarf ekki allt að vera fyrir mig.
Fannst magnað að sjá í Kastljósinu um daginn 2 ný sveitaballabönd sem voru að setja lög (á íslensku) í spilun á bylgjunni og ætluðu að taka sumarið með trukki. Svona á þetta að vera.
Vantar nútíma íslenska slagara. Eins og traustur vinur, stolt siglir fleyið mitt,fjólublátt ljós við barinn. Reyndar eru mugison og hjálmar soldið að gera þetta. Bréfið er slagari. Það verður spilað eftir 50 ár.

» 6 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 13:33:24 / likeable

The king is Dead. Long live the king

Langaði að ræða aðeins bubba morthens.
Ég horfði á afmælispartíið í höllinni í síðustu viku. Ég gleymi stundum hvað Bubbi á mikið af frábærum lögum, sem eru partur af þjóðarsálinni. Ef ég krýf þessa tónleika mússíkalskt þá fannst mér ekki mikill bógur í þessu, eina sem mér fannst eitthvað spúnk í voru utangarðsmenn, algerlega burtséð frá gæðum laganna. og þeir voru frábærir, rock solid sem kom þægilega á óvart.

Það er margt kjamsað á honum bubba, gott og slæmt.
Það er eins og að skvetta vatni á gæs... samt, kannski ekki alveg, því hann virðist eflast við það. Hann er bara svo mikill vingull greyið. Það er erfitt að rífa kjaft, ganga þvert á orð sín, og reyna að koma töff útúr því.
Honum hefur einhvernveginn tekist að segja bara fokkit við allt.
Hann talar ENN um verkalýðinn og plöggar svo kaupleigubíla, helvítis ædolið og allt hvað þetta heitir.
Mér finnst ekkert að því er selebar plögga hluti. Persónulega myndi ég hvorki leggja nafn mitt, ásjónu né rödd á sveif mammons, en það er persónulegt val. Og ég dæmi ekki aðra fyrir sitt val.
Hinsvegar er fáránlegt þegar rebellinn SJÁLFUR. Eini íslendingurinn sem fær hörðustu sjóara til að vökna um augun, er algerlega búinn að selja sig.... og já, ég sagði það. Selja sig.

Það er eins og hann sé að reyna að græða eins mikla peninga á eins stuttum tíma og hann getur. Og þessir tónleikar báru þess klárlega merki. eins og flest sem hann hefur tekið sér fyrir hendur á þessum síðustu og verstu.
Þetta var sjónvarpsþáttur. Pure n simple.
Ég efast um að hann hafi komið mikið nálægt þessari pródúksjon. Annað en að velja lögin og æfa.
Er það bubba morthens á fimmtugsafmælinu hans arfleið samboðið að hafa miðjumoðs
heilaleysiskóngana simma og jóa glansandi og segjandi fimmaurabrandara milli atriða?
Hver sagði ég er löggiltur hálfviti hlustá HLH og Brimkló?
Er í lagi á rokktónleikum/sjóvarpsþætti/live plötu/DVD (ég lofa ykkur því, hvernig sem hægt er að græða á þessum tónleikum, það verður gert.), að hafa innslag þarsem Birgir Ármannsson forstjóri íslandsbanka/glitnis, sem borguðu brúsann. Birgir búna hneppa frá efstu tölunni, losa bindið og óskar bubba innilega til hamingju með daginn?
Glitnir: Cool by association
Einnig var hræðilegt að sjá Snorra Idolsigurvegara koma þarna fram, skilst að hafi verið púað á hann.
HVAR ER ROKKIÐ? HVAR ER SANNFÆRINGIN? HVAR ER HELVÍTIS ROKKIÐ???

Ég skil að Bubbi þurfti að hætta að dópa, það er eðlilegt. Og ég lái honum það ekki.
En fyrr má nú aldeilis vera. Það er eitt að vera edrú og annað að vera smekklaus og gráðugur.
Hann er að missa sig alveg í fjölmiðlahóraríinu. Og ef minnst er á það við hann.
Þá segir hann bara Fuck you, ég er bubbi morthens og ég geri það sem ég vil.
Auðvitað gerir hann það sem hann vill, það er hans réttur.
en ég er viss um það að flestir aðdáendur hins heilaga morthens væru alveg til í að hann myndi aðeins hugsa sig um áður en hann gerir hvað sem er fyrir peninga.


PS. Annað sem fer afskaplega í taugarnar á mér er lagið sem hann samdi um
íslensku vs útlensku í textum. Það er týpískt dæmi.
Bubbi REYNDI að meika það og það gekk ekki.
Þá fór hann að tala niður til þeirra sem syngja á ensku. Það lá að.
Textarnir hans eru betri á íslensku en ensku. Það er ekkert að því.
En það er ansi hallærislegt og biturt að semja svona lag.
Týpískur Bubbi, það gekk ekki hjá honum, þá er það ómögulegt.
og allir eiga að semja á ástkæra ylhýra. Allt annað er feik

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 18:39:47 / likeable

Free the west memphis three!

Nenni ekki að tala um kosningar.

Bob Justman er hinsvegar að spila á styrktartónleikum annað kvöld.

West memphis 3 er nafn sem kannski fáir kannast við.
Ætla ég ekki að rekja sögu þeirra hér og leyfi ég Wikipedia að sjá um skriftirnar fyrir mig.
Vil ég líka benda öllum á heimildarmyndirnar sem gerðar voru um þetta sorglega mál.
Fyrir þá sem komast ekki eru þær til á laugarásvídeó.

WM3 Worldwide Awerness Dagurinn verður haldinn þann 1 Júní í Reykjavík hér koma upplýsingarnar: Gaukur á Stöng
Húsið opnar klukkan 20:00

Sýnd verður myndin Paradise Lost. Sýning myndarinn byrjar klukkan 20:00
Eftir myndina verða haldnir tónleikar til styrktar The West Memphis Three fram koma:


Red Cup
Shadow Parade
Bob Justman
Benny Crespos Gang
Ég
Kofoed ( Aggi lights )


Miðaverð er 500 krónur
Allur ágóði af miðasölu rennur í málskostnað fyrir Damien, Jason og Jessie

http://www.wm3.org/
http://en.wikipedia.org/wiki/West_Memphis_3
http://www.imdb.com/title/tt0117293/

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 17:06:26 / likeable

Kosningapartí

Kgb heldur kosningapartí til stuðnings dansflokknum á sirkus annað kvöld.

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 22:29:33 / likeable

Vormenn Íslands

Vil votta Eyþóri Arnalds samúð mína.
Virðist ekkert ganga upp sem manngreyið tekur sér fyrir hendur.
Hljómsveitin Bong, Íslandssími, Borgarstjoraframboðið (Sic) og svo hið nýklassíska
sjálfstæðisflokkstrix að leyfa selebunum sem meika það ekki í Reykjavík að verða bæjarstjórar í hæfilegum radíus frá borginni.
Virkaði vel með Árna Sigfússon í keflavík. Reyndar er Árni Sigfússon einn af fáum
sjálfsstæðismönnum sem ég held að sé sannur, og prinsippmaður. Þekki hann samt ekki neitt.
Treysti vanalega ekki fólki sem er of hreint eða symmetrískt.
Byrja alltaf að hugsa um að fólk hljóti að vera að fela eitthvað.
Dagur B Eggertsson virðist vera svona núna. Finnst hann hafa breyst.
Átti örstutt spjall við hann fyrir ca 3-4 árum síðan. Mjög ballanseraður einstaklingur og klár.
Svo sé ég hann núna í þessum kosningaham og finnst eins og hann sé í karakter, þjálfaður...
...en já, Eyþór greyið. Áfram siglir hann í lífsins ólgu sjó.
Það sem mér finnst merkilegast við allt þetta hjá honum
er að eftir að hann fær þennan sjens,
og ég get ekki trúað öðru en að sé hans síðasti.
Þá leyfir hann sér að setjast fullur undir stýri!
Skítt með það að hann keyrði á staurinn... og reyndi að stinga af...
Maður með blússandi fínar skoðanakannanir, 50 kílóum léttari, nýja konu uppá arminn...
Lífið brosir við honum og hann skýtur sig í fótinn, af tilefnislausu.
Ég óska Eyþóri alls hins besta í hverju svo sem hann tekur sér fyrir hendur.
Legg þó til ef svo ólíklega vill til að hann lesi þessa grein mína.
Að hann skrúfi niður prófílinn aðeins og hætti að lifa fyrir opnum tjöldum.
Það minnkar líkurnar á því að hann endi á nærbuxunum í kastljósinu næst.


PS: Væri ekki flott ef Gísli Marteinn væri bæjarstjóri í Borgarnesi?

Gæti tekið svona alan partidge atriði (Fyrir þá sem ekki þekkja Alan Partridge er breskur grínkarakter, uppspunninn erkitýpískur spjallþáttastjórnandi sem var svo slæmur að hann var rekinn úr sjónvarpi og endaði með útvarpsnæturvakt í Svæðisútvarpi smábæjarins Norwich)

Gaman að geta teygt úr sér á leiðinni út á land, fengið sér pulsu og fylgst með Gísla,
hressum og kátum senda út beint í svæðisútvarpi vesturlands frá Hyrnunni á föstudagskvöldi?
Gæti jafnvel slegið upp vikulegum nikkuböllum með gömludönsunum, tekið viðtöl við Hrafn Gunnlaugsson, Halldór Blöndal og bændur, sem rifja upp gamlar heyskaparsögur,
á meðan gísli ljómar líkt og sól í heiði, geislandi af æsku og fjöri,
og brosandi aðeins of breitt...

Ég mæti í það partí

» 5 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 03:32:17 / likeable

Kannski er ég ekki svo vitlaus eftir allt saman.

Afskaplega áhugaverð grein, eftir frægan femínista...
og hún er að draga nokkrar af sömu ályktunum og ég gerði síðasta sumar í grein minni.
Kannski er ég ekki svo vitlaus eftir allt saman.

http://www.guardian.co.uk/gender/story/0,,1766848,00.html


Ps: ég er þrítugur í dag

Blöndal

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 16:22:21 / likeable

Sirkus í kvöld

verð að spila á sirkus í kvöld, gott fólk

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 03:43:13 / likeable

Hvernig skiptir maður um lið í pólitík?


Góðir landsmenn!

Gísli S. Einarsson varaþingmaður samfylkingarinnar og fyrrverandi bæjarráðsmaður á akranesi,
hefur tekið hatt sinn og gengið til liðs við erkifjendurna í sjálfstæðisflokknum.

Þetta er sosum enginn stórviðburður því þetta hafa menn oft gert áður, skemmst er að minnast Herbalife sölumannsins Gunnars Örlygssonar, sem barðist með kjafti og klóm gegn kvótanum undir gunnafána svívirta bankastjórans Sverris Hermannsonar hins frjálslynda.
Gunnar snerist á sveif sjálfstæðisins og reyndi mikið að sannfæra hálfvitana sem kusu hann að hann væri í raun ekki að svíkja lit, aðeins að fylgja sannfæringunni og hjartanu. Yndislegur skrípaleikur.
Náttúrulega tómt kjaftæði, en hann sýndi manni þó allavega þá virðingu að reyna að afsaka sig.
Sinnaskipti Gísla fannst mér ekkert spennandi í fréttatímanum. Ég er ekkert inní staðháttum eða lókal pólitík á skaganum. Virkaði ansi reffilegur, miðaldra kall með öryggishjálm, svona maður fólksins.
Í ítarlegra viðtali í íslandi í dag sat hann fyrir svörum og útskýrði mál sitt.
Ágætis fólk hringdi í hann og bað hann um þetta, hann langar alveg til að verða bæjarstjóri þannig að þetta small bara svona fínt! Hann var kominn útí kuldann hjá samfylkingunni þannig að...
Aðspurður um pólitíska hugmyndafræði gaf hann nú ekki mikið fyrir það. Hann lítur á þetta sem starfsumsókn, ekki pólitík.
Pólitík er rugl, knattspyrnumaður getur skipt um lið, ekkert mál. Hann skiptir um treyju.
En í pólitík... hvernig skiptir maður um lið í pólitík?

Það er grundvallarmunur á stefnuskrám sjálfstæðisflokksins og samfylkingarinnar
Með þá vissu getum við ályktað að flestir samfylkingarmenn myndu marga pínu þola fyrr en að leggja nafn sitt við einkavæðingarstefnuna, stóriðjustefnuna, kvótann osfrv.
Göngum við útfrá þessum stærstu ágreiningsmálum þessara tveggja flokka.
Þarf maðurinn þá ekki ganga í gegnum djúpa sjálfsskoðun og endurmeta öll sín gildi?
Er ekki siðleysa að langa í djobbið svo mikið að fórna hugsjóninni?
Hann virkaði ekkert þjakaður á sálinni í sj´ónvarðinu allavega .meira eins og hann hefði verið að skipta um vinnubíl.
Svo lengi sem ég kemst þangað sem ég vil, þá er mér nokk sama hvort er Honda eða Subaru.



Vöknuðu svo spurningar hjá mér:

þegar ég tala um að fórna hugsjóninni, hvað á ég þá við?

Er Gísli S. Einarsson með harðar pólitískar sannfæringar?

Ef Gísli S. Einarsson er ekki með djúpar pólitískar meiningar, er hann þá verri bæjarstjóri?

Er Gísla S. Einarssyni kannski geirfuglinn
sem er sama um pólitíkina,og bara hreinlega annt um bæinn sinn?


Blöndal


http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20060419/FRETTIR01/60419059/1092

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 19:26:30 / likeable

...og fleiri tónleikar

Byrjaði að taka upp trommur fyrir justman plötuna í dag. Tók upp 2 grunna, og stefni á 3-4 á morgun. Allt að gerast. Þakka allar heimsóknirnar. Væri kannski gaman ef ég myndi fá meira feedback, þá kannski skrifaði ég meira hmmm...

Ókeypis Bob Justman tónleikar í 12 tónum á föstudag kl 5. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir

Blöndal

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 05:32:18 / likeable

Tonleikar

3. apríl - Mánudagur-Tónleikar
Leaves með Tónleika á gauknum ásamt Lokbrá og Bob Justman.
Húsið opnar kl. 21 og kostar 500 kr inn.

Lofa að vera betri en síðast

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 15:16:01 / likeable

Bob Justman tónleikar

Miðvikudaginn 22 mars leikur Bob Justman og syngur á gauknum ásamt IDIR og INDIGO.
Veit ekki hvað kostar inn. Tónleikarnir hefjast uppúr 10.

Koma svo!

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 14:54:10 / likeable

Vopnin kvödd

Jæja, þá eru bandaríkjamenn loksins að fara. Ég er hæstánægður með þessa ákvörðun þeirra. Rétt er að þeir hefðu geta gert þetta snyrtilegar en það er líklega ósanngjarnt af okkur að ætla þeim kurteisi. Fíllinn hagar sér eins, sama hvaða postulínsbúð hann er í. Heyrði í útvarpinu í gær þá vangaveltu að íslendingar hefðu einungis áhuga á varnarmálum í því samhengi að græða á þeim. Það má til sannsvegar færa. Íslenska ríkið heur engin plön varðandi varnir okkar. Þetta er þó skiljanlegt, alla mína tíð hef ég, sem og flestallir sem þetta lesa, meðvitað sem ómeðvitað lifað undir því ósýnilega teppi sem verndarvængur heimsveldisins bjó okkur. Einu skiptin sem maður tekur eftir þessu fyrirkomulagi er Á leið útá flugvöll, þá sér maður blokkir og girðingar og hugsar um í sekúndubrot: já, við erum með her!. Svo heldur maður áfram út í heim. Eins gefur maður þessu augnabliksgaum þegar maður sér fréttir af sjóslysi þar sem herþyrla reddaði skipbrotsmonnum úr háska. Eins sá maður einu sinni á ári fréttir af einhverjum grænmetisætum sem nenntu að labba milli reykjavíkur og keflavíkur útaf engu.
Labba til keflavíkur? og ekki einu sinni á leið til útlanda?!

Ég er friðelskandi kviðstrjúkur, en geri mér þó grein fyrir að varnarlaus getum við ekki verið. Þá á ég ekki við að íslendingar vígbúist a la Björn Bush Bjarnason. Heldur bara það að við getum séð viðhald og vernd okkar ástkæru fiskveiðilögsögu, þá á ég við varðskip og björgunarþyrlur. Þó við höfum sofið vært undir ábreiðunni er ekkert óeðlilegt að ætlast til að ráðamenn gerðu ráð fyrir því að einhverntímann þyrftum við að borga undir rassinn á sjálfum okkur.
Það virðist ekkert öryggisnet vera til hjá ríkinu á þessum tímamótum,
hinsvegar hefur verið eytt óratíma og peningum í að væla í bandaríkjamönnum um að fara ekki. Eins er kannski vert að minnast á umsókn okkar í öryggisráð sameinuðu þjóðanna sem var eytt formúgu í, og varð svo ekkert úr.

Þeir einu sem hafa búið sig undir þessa óumflýjanlegu ákvörðun eru yfirvöld í reykjanesbæ.
En það er útaf atvinnumálum, ekki varnarmálum. Enda varnarmál landsins ekki á þeirra könnu.

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 05:06:04 / likeable

jæja...

Jæja, hér er ég.
Neita að biðjast afsökunar á fjarveru minni. Tók það fram í fyrstu bloggfærslunni að ég væri hvorki vanafastur né reglusamur, og að ég myndi blogga þegar ég hefði nennu, minni eða ástæðu til. Allavega... nú veit ég ekki alveg hvað skal segja. dettur satt að segja ekkert í hug. Búið að vera mikið að gera. Síðasta mánudag kom út í bretlandi fyrsta Unsound smáskífan við lagið Devote your life to a lost cause á sjötommu. B-hliðin inniheldur lagið Motion Control. Allt gengur vel og barninu heilsast ágætlega. Ég var að leggja lokahönd á smáskífu númer 2, sem inniheldur lagið Close to you og B-hliðarlagið Remember the dark children.
Ég var að koma frá akureyri þar sem ég spilaði með ensími í Verkmenntaskólanum í kvöld. Ágætis tónleikar, samt ánægður með að vera búinn með unglingsárin.
Næsta mál á dagskrá er að fara í stúdíó og klára Bob Justman plötuna sem verður, ef stuð lofar, gefin út af smekkleysu í maí. Meira blogg seinna...

Blöndal

PS
ef einhver vill fara á póstlista varðandi bob justman/unsound uppákomur, sendið mér tóman póst á bobjustman@gmail.com og ég læt vita þegar við á.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4